Thursday, December 27, 2007

Ég er ekki enn

farin að benda neinum á þetta ágæta blogg. Þá helst vegna þess að ég hef ekkert merkilegt að segja - aðallega þó vegna þess að ég vil venjast eigin skrifum án þess að fá klígju. Þangað til verðið þið lesendur að bíða þolinmóðir...

Friday, December 7, 2007

Ég grenjaði bókstaflega úr hlátri...

...þegar karlinn var að lýsa því fyrir mér hvernig ég var í nótt þegar ég hafði fengið að sofa í 15 mínútur eða svo og barnið byrjaði að vola.

Ég lá hálfdauð, danglandi í rassinn á honum (því það er víst eina leiðin til að fá hann til að sofna núorðið) með lafandi hendi - og spurði karlinn hvort að nú væri kominn tími til að fremja sjálfsmorð.

Ég man ekki eftir neinu af þessu - en ég hef líklega vitað að um leið og ég væri búin að svæfa yngra barnið, þá færi eldra barnið að væla. Það er orðið jafn sjálfsagt og að anda að sér lofti.

Það er yndislegt að eiga börn. En hvernig í andskotanum fór sú staðreynd framhjá mér að börn eru gerlastía og þau eru ALLTAF VEIK?! Nú eru þau tvö og í stað þess að veikjast saman, þá skiptast þau á. Líklega vegna þess að annað er leikskólabarn en hitt ekki. Og við vitum öll að leikskólar eru mekka gerlaflórunnar. Og leikskólabörnin eru trúboðarnir. Og litla barnið mitt sem er ekki enn orðið leikskólabarn er samt sem áður bara einföld sál sem drekkur allt í sig eins og svampur. Jæja, ég kaus þetta og verð þá að lepja það súra með því sæta.

Móralnum í þessari frásögn er hægt að lýsa með einu orði: Geðveiki.

Friday, November 23, 2007

Ölvið ykkur!

Við eigum sífellt að vera ölvuð. Allt er undir því komið: það eitt skiptir máli. Ef þið viljið ekki finna ógnarhramm tímans leggjast á herðar ykkar og sliga ykkur í duftið, þá verðið þið að ölva ykkur viðstöðulaust. En með hverju? Víni, skáldskap eða dyggðum, eftir geðþótta ykkar. En ölvið ykkur. Og ef svo ber við á hallartröppum, á grænu grasi einhvers skurðar, í grárri einveru hússins, að þið vaknið og ölvunin hefur dvínað eða er horfin, þá spyrjið vindinn, ölduna, stjörnuna, fuglinn, klukkuna, allt sem flýr, allt sem emjar, allt sem veltur, allt sem syngur, allt sem talar, spyrjið hvað tímanum líði; og vindurinn, aldan, stjarnan, fuglinn, klukkan munu svara ykkur: "Það er ölvunarstund! Losið ykkur undan þrældómsoki tímans með því að vera sífellt ölvuð. Af víni, skáldskap eða dyggðum, allt eftir geðþótta."

(Úr Litlum prósaljóðum)

Sunday, November 11, 2007

Prófa aftur.

Ég gerði heiðarlega tilraun í fyrra en týndi blogginu mínu. Hér er tilraun númer tvö.